Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Icelandic Group hf. á aðalfundi félagsins, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.


Aðalsteinn Helgason, Akureyri, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf.

Baldur Guðnason, Seltjarnarnes, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands

Guðmundur P. Davíðsson, Reykjavík, forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands hf.

Magnús Þorsteinsson, Akureyri, stjórnarformaður Hf. Eimskipafélags Íslands og Icelandic Group hf.

Steingrímur H. Pétursson, Akureyri, varastjórnarmaður Icelandic Group hf.



Til vara:
Páll Magnússon, Reykjavík, fjármálastjóri Sund ehf.

Stefán Ágúst Magnússon, Reykjavík, fjármálastjóri Hf. Eimskipafélags Íslands

Aðalfundurinn verður haldinn 23. mars 2007 næstkomandi. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn þess skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Er því sjálfkjörið til stjórnar Icelandic Group hf.