Árni Hauksson mun sitja áfram sem stjórnarformaður Haga en núverandi stjórn félagsins gaf kost á sér til áframhaldandi setu. Fimm sitja í stjórninni og er því sjálfkjörið í hana fyrir aðalfund sem haldinn verður á föstudag.

Fram kemur í tilkynningu frá Högum að önnur framboð hafi ekki borist um stjórnarsæti og sé framboðsfrestur útrunninn.

Ásamt Árna sitja í stjórn Haga þau Erna Gísladóttir, eigandi BL, Hallbjörn Karlsson fjárfestir sem keypti stóran hlut í Högum ásamt Árna í fyrra, Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Plastprents, og Kristín Friðgeirsdóttir, lektor í stjórnunar- og rekstrarfræðum við London Business School í Bretlandi.