Sjálfkjörið er í stjórn Icelandair Group. Stjórnin hefur ekkert breyst á milli ára að því leyti að Finnbogi Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins. Hann er hættur hjá sjóðnum og tekur Ásthildur Margrét Otharsdóttir sæti hans.

Aðalfundur félagsins fer fram á föstudag. Í framboði voru Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Herdís Dröfn Fjeldsted, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helgason, sem jafnframt er stjórnarformaður Icelandair Group, og Úlfar Steindórsson. Í framboði til varamanns var Magnús Magnússon einn.

Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair Group að nú séu þrír varamenn í stjórn félagsins. Stjórnin hefur ákveðið að leggja til við hluthafafund að samþykktum félagsins verði breytt þannig að engir varamenn verði framvegis.