Sjálfkjörið er í stjórn Icelandair Group, en aðalfundur félagsins er haldinn þann 13. mars næstkomandi. Sitjandi stjórnarmenn gefa allir kost á sér til setu í stjórn félagsins að nýju, en það eru þau Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Herdís Dröfn Fjeldsted, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair, og Úlfar Steindórsson, varformaður stjórnar.

Þá býður Magnús Magnússon sig fram sem varamaður í stjórn Icelandair Group.