Sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður þriðjudaginn 6. mars næstkomandi kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Frambjóðendur eiga það sammerkt að vera allir núverandi stjórnarmenn en sjö sitja í stjórn Marel og munu þau sjálfkrafa ná endurkjöri.

  • Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi
  • Arnar Þór Másson, London, Englandi
  • Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík
  • Ástvaldur Jóhannsson, Seltjarnarnesi
  • Helgi Magnússon, Seltjarnarnesi
  • Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnesi
  • Ólafur Steinn Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum