Sjálfkjörið verður í stjórn Marels á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður þann 4. mars næstkomandi, að því er kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. Allir sjö núverandi stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn fyrirtækisins og nú, þegar framboðsfrestur er runninn út, hefur enginn annar gefið kost á sér til stjórnarsetu.

Þau sem verða því sjálfkjörin í stjórn félagsins eru Ann Elizabeth Savage, Arnar Þór Másson, núverandi varaformaður stjórnar, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, núverandi stjórnarformaður, Ástvaldur Jóhannsson, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdóttir og Ólafur Steinn Guðmundsson.