Á aðalfundi Regins, sem haldinn verður í Hörpu miðvikudaginn 15. mars næstkomandi klukkan 16:00, mun sama stjórn og setið hefur undanfarið ár verða sjálfkjörinn, því engin mótframboð hafa borist.

Í stjórn sitja fimm aðalmenn og tveir varamenn en eftirtaldir hafa gefið kost á sér:

  • Albert Þór Jónsson,  sem setið hefur í stjórn frá apríl 2015
  • Benedikt Kristjánsson, stjórnarformaður, sem setið hefur í stjórn félagsins frá því í desember 2012.
  • Bryndís Hrafnkelsdóttir, sem setið hefur í stjórn frá apríl 2014
  • Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, sem einnig hefur setið í stjórn frá apríl 2014
  • Tómas Kristjánsson, en hann hefur setið í stjórninni frá því í apríl 2014.

Auk þeirra bjóða varamenn sig áfram fram, það eru þau Finnur Reyr Stefánsson og Hjördís D. Vilhjálmsdóttir, en þau eru bæði hagfræðingar.