Fimmtudaginn 16. mars var aðalfundur Skeljungs hf. haldinn á Hótel Hilton Reykjavík Nordica.

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins og aðrar tillögur sem lagðar voru fyrir. Tillögurnar sem samþykktar voru fólu til að mynda í sér breytingar á samþykktum og ákvörðun um að greiða ekki út arð.

Starfskjarastefna, þóknun stjórnarmanna og breytingar á starfsreglum tilnefningarnefnd voru einnig rædd á aðalfundinum og voru allar þær tillögur samþykktar.

Sjálfkjörið var í stjórn félagsins, en eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér:

  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Gunn Ellefsen
  • Jens Meinhard Rasmussen
  • Jón Diðrik Jónsson
  • Trausti Jónsson