Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík fer fram á laugardaginn. Í tilkynningu frá Verði, fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, kemur fram að prófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum. Athuga ber að þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem ganga í flokkinn á kjördegi skulu hafa náð 18 ára aldri á kjördag 31. maí 2014, þ.e. hafa atkvæðisrétt í borgarstjórnarkosningunum. Flokksbundnir sjálfstæðismenn þurfa hins vegar aðeins að vera 15 ára þegar prófkjörið fer fram.

Kjörstaðir eru opnir frá kl. 9:00 – 18:00 og eru þeir eftirfarandi:

1. Kjörhverfi
Vestur‐ og Miðbæjarhverfi, Nes‐ og Melahverfi og Austurbæjar‐ og Norðurmýrarhverfi. Öll byggðin vestan Rauðarárstígs að Miklubraut.
Kjörstaður: Hótel Saga, Katla (gengið inn norðan megin).

2. Kjörhverfi
Hlíða‐ og Holtahverfi, Laugarnes‐ og Túnahverfi og Langholtshverfi. Öll byggð er afmarkast af 1. kjörhverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar að Suðurlandsbraut og öll byggð norðan Suðurlandsbrautar.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.

3. Kjörhverfi
Háaleitishverfi, Smáíbúða, Bústaða‐ og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur, Suðurlandsbraut í norður og Reykjanesbraut í austur.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.

4. Kjörhverfi
Árbæjar‐ og Seláshverfi, Ártúns‐ og Norðlingaholt.
Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins, Hraunbær 102b (við hliðina á Skalla)

5. Kjörhverfi
Hóla‐ og Fellahverfi, Bakka‐ og Stekkjahverfi, Skóga‐ og Seljahverfi.
Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna Mjódd, Álfabakka 14a

6. Kjörhverfi
Grafarvogur, Bryggjuhverfi, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes.
Kjörstaður: Sporhamrar 3 í Grafarvogi (þar sem 10/11 var áður)

Nánari upplýsingar um prófkjörið má nálgast hér: