Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í yfirlýsingu að hann harmi að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa „veitt styrkjum viðtöku frá einstökum aðilum upp á tugi milljóna."

Bjarni vísar ekki einungis til styrksins frá FL Group upp á 30 milljónir heldur einnig til óeðlilega hás styrks, eins og það er orðað, frá Landsbankanum á sama tíma. Sá styrkur var 25 milljónir króna. Bjarni tekur ram að ný forysta flokksins hyggist skila styrkjunum.

Bjarni segist í yfirlýsingunni hafa kallað eftir því að bókhald flokksins frá árinu 2006 verði opnað og upplýst um öll fjárframlög frá fyrirtækjum sem eru yfir milljón krónur.

„Ég skora jafnframt á aðra stjórnmálaflokka að gera slíkt hið sama í þeim tilgangi að eyða öllum vafa um óeðlileg framlög í aðdraganda lagasetningarinnar um fjármál stjórnmálaflokka," segir hann.

„Ég tel þessar aðgerðir nauðsynlegt skref til að fjármál Sjálfstæðisflokksins séu hafin yfir vafa og traust ríki í garð flokksins. Þetta er liður í nauðsynlegu uppgjöri innan flokksins og undirstrikar vilja nýrrar forystu til að ganga hreint til verks í þessum efnum sem öðrum.“

Sjálfstæðisflokkurinn harmar málið

Sjálfstæðisflokkurinn í heild hefur einnig sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og í henni segir m.a. að nýrri forystu Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið kunnugt um fjárstuðning fyrrnefndra fyrirtækja og harmar að gengið skuli hafa verið fram með þessum hætti.

„Ný forysta leggur áherslu á stuðning sinn við núgildandi lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu um þau, en frumvarp þar að lútandi var lagt fram á Alþingi að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins í árslok 2006 og stóðu formenn allra stjórnmálaflokka að því.

Þar er kveðið á um það að framlög frá lögaðilum og einstaklingum megi að hámarki vera 300 þúsund, en markmiðið með því er að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum stjórnmálaflokkanna," segir í yfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins.