Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd þingsins telja sjálfsagt að fá umsögn frá Evrópska seðlabankanum um frumvarp forsætisráðherra um Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Birgis Ármannssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, sem send hefur verið fjölmiðlum.

Í frétt Ríkisúvarpsins í dag var greint frá því að inn á aukafund viðskiptanefndar í morgun hafi borist skilaboð um að Evrópski seðlabankinn (ECB) væri reiðubúinn að gefa umsögn um Seðlabankafrumvarpið.

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni töldu sjálfsagt og eðlilegt að leita eftir þessari umsögn, enda er mikilvægt að við afgreiðslu málsins í nefndinni komi fram álit sérfróðra aðila, innlendra sem erlendra, á efnisatriðum frumvarpsins," segir í yfirlýsingu Birgis.

„Meirihluti nefndarmanna, fulltrúar VG, Samfylkingar og Framsóknarflokksins höfnuðu hins vegar tillögu sjálfstæðismanna um þetta og báru því einkum við að ætlunin væri að vinna málið hratt og því gæfist ekki tími til að bíða eftir þessari umsögn. Sjálfstæðismenn óskuðu þá eftir því að eftir því yrði leitað að ECB skilaði umsögn innan fárra daga, enda væri hvort sem er ljóst að talsverð vinna væri eftir við þetta mál innan nefndarinnar. Ekki var heldur á það fallist af hálfu meirihluta nefndarinnar."

Þingmaðurinn segir í lokin að þessi afgreiðsla meirihluta nefndarinnar  valdi vonbrigðum, „enda er ljóst að innan ECB er að finna verulega sérþekkingu á löggjöf um seðlabanka, sem eðlilegt hefði verið að nýta við meðferð þessa frumvarps."