Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2007.

Í ritinu, sem hægt er að nálgast á vef Hagstofu Íslands , kemur fram að á árinu 2007 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 127 milljörðum króna og jókst um 2,8% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 2,3%.

Í fréttatilkynningu frá Hagstofu kemur fram að fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 127,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 2,6% en dróst saman í tonnum um 6,3%.

Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýrum og flatfiski jókst frá fyrra ári.

Líkt og árið áður skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis.

Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 12,7 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 80% til  Evrópska efnahagssvæðisins, 6,2% til Norður Ameríku og 6,1% til Asíu.