Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn 26. september og ber yfirskriftina Lítill fiskur í stórri tjörn. Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2017 og samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegum markaði, en um 98% af afla af Íslandsmiðum er seldur þar.

Dagsetning viðburðar: miðvikudaginn 26. september

Staðsetning: Harpa, Norðurljós

Tímasetning: húsið opnað kl. 08:00 - fundur frá 08:30 – 10:00

Þema: Samkeppnishæfni sjávarútvegs

Skráning: [email protected]

Morgunverður frá 08:15

Aðgangur: 3.500 krónur

Dagskrá:

08:30 Opnunarávarp: Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

08:50 Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi Deloitte ehf.

Sjávarútvegsgagnagrunnur Deloitte vegna ársins 2017

09:10  Ásgeir Jónsson, deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands

Framtíðarhlutverk sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi

09:30 Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Eskju hf.

„Skip án stefnu siglir í strand“

09:50 Samantekt Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS

Fundarstjóri: Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Arion banka.