Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki áttu í lok árs 2010 samtals 559 milljarða króna. Eigið fé nam 59 milljörðum en heildarskuldir voru 500 milljarðar króna, samkvæmt nýrri frétt Hagstofunnar. Í hefti Hagstofunnar er birtar niðurstöður athugana um fiskveiðar og fiskvinnslu árið 2010.

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs dróst lítillega saman milli áranna 2009 og 2010. Í fiskveiðum og vinnslu lækkaði hlutfallið úr 31% í 28,9%,

Hreinn hagnaður (EBIT), samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 19,8% árið 2010 samanborið við 22% árið áður. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 15,1% hagnaður samanborið við 14% hagnað árið 2009, samkvæmt frétt Hagstofunnar. Í fyrri aðferðinni gætir ekki beinna áhrifa af breytingu á gengi við mat á fjármagnskostnaði.

Hagtíðindi Hagstofunnar um sjávarútveg .