Á fimmtudag kemur hingað til lands sjávarútvegsráðherra Indónesíu, Freddy Numberi, ásamt fylgdarliði. Með í för er m.a. sendiherra Indónesíu gagnvart Íslandi, Retno L.P. Marsudi, en hún hefur aðsetur í Osló.

Í tilefni af heimsókninni býður ráðherrann íslenskum athafnamönnum til fundar á Grand Hótel, föstudaginn 11. apríl kl. 9.00.