Sjö gefa kost á sér í fimm stjórnarsæti Icelandair samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Af þeim sem gefa kost á sér eru fjögur sem eiga nú þegar sæti í stjórn en það eru Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður og forstjóri Toyota, Ómar Benediktsson, forstjóri Farice og varaformaður stjórnar, Katrín Olga Jóhannesdóttir og stjórnarformaður viðskiptaráðs, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel.

Einn núverandi stjórnarmaður gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það er Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga.

Þrjú ný gefa því kost á sér en það eru Guðmundur Hafsteinsson, vörustjóri hjá Google, Heiðrún Jónsdóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Íslandsbanka, Símanum og Olís og Helga Viðarsdóttir.