Tilnefningar bárust um sjö íslensk fyrirtæki til Scandinavian Travel Award ferðaverðlaunanna sem afhent verða á ITB-ferðasýningunni í Berlín í mars næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Ferðamálastofu.

Auglýst var eftir tilnefningum í janúar síðastliðnum og geta fyrirtæki stungið upp á bæði sjálfum sér og öðrum. Gjaldgeng í valinu eru fyrirtæki á Norðurlöndunum en í dómnefnd sitja m.a. forstöðumenn norrænu ferðamálaráðanna í Þýskalandi, blaðamenn, markaðsfólk o.fl.

Í flokknum “nýsköpun” (Innovation) bárust tilnefningar um fimm íslensk fyrirtæki:

- Borea Adventures

- Fosshotel

- Ísafold Travel

- Island Pro Travel

- Viator

Í flokknum “árangur” (success) eru tvö íslensk fyrirtæki tilnefnd:

- Iceland Excursions-Grayline

- Viator

Tilkynnt verður um hverjir hljóta verðlaunin að kvöldi 5. mars í sérstöku hófi í samkomusal norrænu sendiráðanna í Berlin en þann dag hefst ITB ferðakaupstefnan.