Heildarvelta í Kauphölli nam rúmum sjö milljörðum króna í dag. Á hlutabréfamarkaði var veltan rúmur milljarður, 5,7 milljarða króna velta var á skuldabréfamarkaði og 300.000 króna velta á First North markaði.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,03% í dag en hefur hækkað um 4,76% frá áramótum. Nýherji hækkaði mest eða um 2,04%. Össur hækkaði um 0,49% og VÍS um 0,43%. Icelandair Group var eina félagið sem lækkaði og um 0,46%.