Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrv. saksóknari í efnahagsbrotadeild, Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, eru meðal umsækjenda um embætti ríkissaksóknara en alls bárust sjö umsóknir um embættið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 28. febrúar sl.

Umsóknirnar verða nú sendar til meðferðar hjá hæfnisnefnd er skal vera ráðherra til fulltingis við undirbúning skipunar í embættið og skila honum rökstuddu og skriflegu mati á hæfni umsækjenda, skv. tilkynninguni.

Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. apríl nk. en þá lætur Valtýr Sigurðsson af störfum.

Umsækjendur um embætti ríkissaksóknara í stafrófsröð:

  1. Egill R. Stephensen, lögfræðingur við embætti tollstjóra.
  2. Helgi Magnús Gunnarsson, aðstoðarsaksóknari Alþingis og saksóknari við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
  3. Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
  4. Kolbrún Sævarsdóttir, settur héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur.
  5. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi.
  6. Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis og vararíkissaksóknari (í leyfi).
  7. Sigríður Elsa Kjartansdóttir, settur vararíkissaksóknari og saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara.