Sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel hf . á aðalfundi félagsins, sem verður haldinn fimmtudaginn næstkomandi. Eftirfarandi aðilar bjóða sig fram til stjórnarsetu:
- Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi
- Arnar Þór Másson, London, Englandi
- Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík
- Ástvaldur Jóhannsson, Seltjarnarnesi
- Helgi Magnússon, Seltjarnarnesi
- Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnesi
- Ólafur Steinn Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum
Framboðsfrestur er nú runninn út. Samþykktir félagsins kveða á um að fjöldi stjórnarmanna skuli vera 5 til 7. Verða framangreindir sjö aðilar þar af leiðandi sjálfkjörnir í stjórn félagsins á komandi aðalfundi án sérstakrar atkvæðagreiðslu.