Sjö vilja setjast í stjórn Sjóvár á næst aðalfundi félagsins. Frestur til að skila inn framboði rann út í gær. Í framboði eru þau Erna Gísladóttir, stjórnarformaður Sjóvár, Heimir V. Haraldsson, Hjördís E. Harðardóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Tómas Kristjánsson, sem þegar sitja í stjórn Sjóvár. Auk þess gefa kost á sér þeir Jón Guðni Kristjánsson og Leifur A. Haraldsson.

Til setu í varastjórn gefa kost á sér þau Anna Guðmundsdóttir, Axel Ísaksson, Erna Hlíf Jónsdóttir, Garðar Gíslason, Jón Diðrik Jónsson og Leifur A. Haraldsson.

Aðalfundur Sjóvár verður haldinn á þriðjudag í næstu viku eða 29. apríl næstkomandi.