Eignir verðbréfa-, fjárfestingar og fagfjárfestasjóða hafa aukist um 3% frá desember 2013 til desember 2014. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum Seðlabankans en þær námu 635,8 milljörðum króna í lok desember og hækkuðu um 6,5 milljarða króna á milli mánaða.

Í tilkynningu á vef seðlabankans segir að eignir verðbréfasjóða námu 202,5 ma.kr. og lækkuðu um 8,1 ma.kr. milli mánaða, eignir fjárfestingarsjóða námu 165,8 ma.kr. og hækkuðu um 13,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 267,5 ma.kr. og hækkuðu um 1 ma.kr. Þá eru mestu breytingarnar á milli mánaða vegna skuldabréfa-, hlutabréfa- og peningamarkaðssjóða. Eignir skuldabréfasjóða lækkuðu um 1,1 ma.kr. milli mánaða, eignir hlutabréfasjóða hækkuðu um 3,2 ma.kr. og eignir peningamarkaðssjóða hækkuðu um 2,7 ma.kr. Frá áramótum 2013 hafa eignir peningamarkaðssjóða hækkað um 24,4 ma.kr. eða um 92%, eignir hlutabréfasjóða hækkað um 13,1 ma.kr. eða 19% en eignir skuldabréfasjóða hafa yfir sama tíma lækkað um 31,9 ma.kr. eða um 7%.

Í lok desember var heildarfjöldi sjóða 157, þ.e. 52 verðbréfasjóðir, 46 fjárfestingarsjóðir og 59 fagfjárfestasjóðir. Opið var fyrir viðskipti í 143 sjóðum og 14 sjóðir voru í slitaferli.

Nánari upplýsingar eru að finna á vef Seðlabankans .