Stefnir, rekstrarfélag sjóða í eigu Arion banka, hefur fyrir hönd þriggja sjóða aukið hlut sinn í Icelandair Group.

Um er að ræða sjóðina Stefnir ÍS-15, Stefnir ÍS-5 og Stefnir Samval.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að sameiginlegur hlutur fyrrnefndra sjóða er nú 5,17%. Fyrir áttu sjóðirnir sameiginlega um 4% hlut í félaginu, þarf af átti Stefnir ÍS-15 2,1% hlut. Allir sjóðirnir eru á lista yfir 20 stærstu hluthafa í félaginu.

Rétt er að taka fram að Stenfir á ekki eignarhlut í Icelandair Group með beinum hætti.