Fagfjárfestasjóðurinn GAMMA: Credit Opportunity Fund í stýringu fjármálafyrirtækisins GAMMA Capital Management hf. hefur verið tilnefndur til evrópsku sjóðaverðlaunanna European Performance Awards. Sjóðurinn er tilnefndur í fjórum flokkum, sem besti sérhæfði lánasjóðurinn í Evrópu, besti evrópski sjóðurinn í flokki beinna lánveitinga, besti hávaxtasjóðurinn í Evrópu og besti blandaði lánasjóðurinn í Evrópu.

Verðlaunin eru veitt þeim sjóðum sem hafa skarað fram úr á sviði sérhæfðra lánveitinga í Evrópu, en GAMMA keppir þar um verðlaun við nokkur af fremstu og stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum heims, svo sem Cheyne Capital og Man Group. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Lundúnum þann 2. nóvember.

„Við hjá GAMMA erum afar stolt af þessum tilnefningum til evrópsku sjóðaverðlaunanna. Um er að ræða staðfestingu á því að sjóðirnir okkar eru á meðal þeirra bestu í Evrópu og veitir þetta okkur hvatningu til að halda áfram á sömu braut og gera enn betur,“ segir Gísli Hauksson, stjórnarformaður GAMMA.