Innflutningur á sjónvarpstækjum jókst talsvert á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 miðað við sama tímabil 2009. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru flutt inn 10.024 sjónvarpstæki fyrstu átta mánuði þessa árs á móti 8.113 tækjum á sama tíma í fyrra. Þetta eru samt verulega færri sjónvarpstæki en flutt voru inn á sjálfu hrunárinu 2008. Þá voru flutt inn 14.174 tæki.