Hátt í sjötíu ára gömul skjöl og kvittanahefti sem ætla má að hafi flest heyrt undir viðskiptaráðuneytið á árunum 1946-48, komu á dögunum ljós í Arnarhvoli. Skjölin fundust á heldur óhefðbundnum stað, eða í gamalli þakklæðningu sem verið er að skipta um í endurbótum á húsnæði fjármálaráðuneytisins. Fram kemur á vef fjármála- og efnahagsráðuneytis að ráðuneytið hafi strax eftir fund skjalanna haft samband við Þjóðskjalasafn, sem tekur við þeim.

Skjölin, sem eru í nokkru magni, fela í sér ýmis samskipti við Fjárhagsráð, sem fór með innflutnings- og gjaldeyrismál á eftirstríðsárunum, og Nýbyggingarráð, sem starfaði í tíð ríkisstjórnar Ólafs Thors á árunum 1944-1947 og sinnti m.a. nýsköpun í íslensku atvinnulífi.

Lokið var við þakklæðninguna sem skjölin fundust í árin 1948-9. Spurningunni um hvers vegna skjölin rötuðu þangað á sínum tíma er hins vegar ósvarað. Samkvæmt reglum Þjóðskjalasafns Íslands ber opinberum stofnunum að varðveita öll skjöl eldri en frá 1960 og er grisjun ekki heimil. Ráðuneytið hefur gert Þjóðskjalasafni viðvart um skjölin og tekur safnið við þeim og skoðar.