Enn hefur enginn tekið 6. hæðina í húsi Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi á leigu.

Hluti af hagræðingaraðgerðum Orkuveitunnar, sem nýlega voru kynntar, var að koma hæðinni í útleigu. Reykjavík Energy Invest (REI) var áður með aðsetur á hæðinni en hún hefur nú verið tóm sl. ár.

Hæðin er 745 fermetrar en leiguverðið er 2.400 kr. á hvern fermetra, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni. Samkvæmt því myndi Orkuveitan fá um 1,8 m.kr. á mánuði fyrir að leigja út alla hæðina. Þá er hægt að leigja hluta af hæðinni, 290 fermetra og 379 fermetra.