Sjötta hver króna sem ríkissjóður greiddi á árinu 2012 í það sem flokkast til opinberrar þróunaraðstoðar er vegna starfa Íslendinga hér heima og á erlendum vettvangi. Samtals eru þetta um 540 milljónir af heildarframlagi Íslendinga sem nam um 3,3 milljörðum árið 2012. Um 170 milljónir voru vegna starfa Íslendinga hér innlands eða um 5,2% af heildarframlagi Íslendinga.

Viðskiptablaðið beindi fyrirspurn til utanríkisráðuneytisins þar sem spurt var um fjölda starfsgilda Íslendinga og kostnaðar sem til fellur vegna þeirra sem flokkast til þróunaraðstoðar. Samtals fara um 16,4% af allri þróunaraðstoð Íslands í kostnað við störf Íslendinga. Um er að ræða 19,5 starfsgildi hér á landi en 18,65 starfsgildi á erlendum vettvangi.

Þróunaraðstoð vegna starfa Íslendinga
Þróunaraðstoð vegna starfa Íslendinga

Í svari utanríkisráðuneytisins kemur fram að árið 2012 voru 9 stöðugildi á þróunarsamvinnusviði utanríkisráðuneytisins og nam kostnaður um 2,3 % af heildarframlögum Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 2012. Árið 2012 var Þróunarsamvinnustofnun Íslands með 7,25 stöðugildi  útsendra starfsmanna erlendis og nam kostnaður um 4,1% af heildarframlögum Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 2012 og 10,5 stöðugildi á Íslandi og nam kostnaður um 2,9% af heildarframlögum 2012.

Íslenska friðargæslan var með 18 útsenda sérfræðinga hjá alþjóðastofnunum árið 2012 en þeir voru þó bara í 10,15 stöðugildum og 1 útsendur sérfræðingur var á vegum utanríkisráðuneytisins hjá Alþjóðabankanum. Samtals nam kostnaður vegna þessara starfa 7,1% af heildarframlögum Íslands árið 2012.