Í dag fór fram uppgjör á kaupum Milestone ehf. á 33,4% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. af Glitni banka hf. Sjóvá-Almennar tryggingar er nú 100% dótturfélag Milestone ehf.

Kaupin voru að meginhluta fjármögnuð með eigin fé Milestone ehf. og að hluta með láni frá J.P. Morgan. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Glitnir banki hf. munu halda áfram samstarfi sínu um sölu á vátryggingum og annarri fjármálaþjónustu eins og verið hefur.

Eftir kaupin á Milestone ehf. 22,2% hlut í Glitni banka hf.