Sjóvá hefur fært alla eignarhluti sína í bæði Hampiðjunni og HB Granda yfir í SJ1 ehf., samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

SJ1 ehf. er 100% dótturfélag Sjóvá og hefur þann eina tilgang að fjárfesta og ávaxta eignir tryggingarfélagsins. Sjóvá er alfarið í eigu Milestone.

SJ1 ehf. á 9,11% hlut í Hampiðjunni og 5,58% í HB Granda.