Það sem af er degi hefur gengi bréfa Sjóvár í kauphöll Nasdaq Iceland hækkað um 4,67% í 105 milljóna króna viðskiptum. Sjóvá kynnti niðurstöður síðasta árs eftir lokun markaða í gær.

Hagnaður af rekstri Sjóvár árið 2014 var 1.029 milljónir króna samanborið við 1.790 milljóna króna hagnað á sama tíma árið áður. Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 1.698 milljónum í fyrra, en var 2.610 milljónir árið 2013.

Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam jókst úr 1.354 milljónum árið 2013 í 1.472 milljónir í fyrra, en fjárfestingartekjur lækkuðu úr 2.191 milljónum í 1.297 milljónir á sama tíma.