Hagnaður Sjóvár á öðrum ársfjórðungi 2017, nam 702 milljónum króna sem er töluverð aukning frá sama tímabili í fyrra þegar hann nam 286 milljónum króna. Jókst hagnaður félagsins því um 145,5% milli ára.

Hagnaður félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 1.803 milljónum króna samanborið við 709 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Hagnaður af vátryggingarstarfsemi félagsins fyrir skatta nam 250 milljónum króna en nam 128 milljónum á sama tímabili í fyrra. Er því um að ræða aukningu upp á 95,3% á milli ára.

Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrirtækisins fyrir skatta nam 539 milljónum króna saman borið við 331 milljón árið 2016. Jókst hagnaður af fjárfestingarstarfsemi því um 62,8% milli ára. Iðgjöldin jukust einnig milli ára eða úr 3.691 milljón í 4.029 milljónir króna, en tjónakostnaður jókst einnig eða úr 2.723 milljónum í 3.004 milljónir króna.

Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri félagsins jókst um 7,1% milli ára og nam 941 milljón á tímabilinu. Ávöxtun af eignasafni félagsins nam 2,5% á tímabilinu.

Í tilkynningu vegna uppgjörsins segir Hermann Björnsson, forstjóri félagsins:

„Afkoma Sjóvár á öðrum ársfjórðungi er í takt við það sem búast mátti við og það sama má segja um afkomuna fyrstu sex mánuði ársins. Eins og oft áður er það fjárfestingarstarfsemin sem myndar stærsta hluta heildarafkomunnar. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að bæta afkomu vátryggingastarfseminnar. Þess sjást merki í afkomu annars ársfjórðungs sem var mun betri en fyrir ári þrátt fyrir einstök stærri stór tjón það sem af er árinu. Fyrir fyrstu sex mánuði ársins hefur vöxtur eigin iðgjalda verið meiri en vöxtur eigin tjóna.

Við teljum afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni þar sem hvert tjón getur valdið óbætanlegum skaða og kostnaður numið tugum milljóna. Sjóvá er þátttakandi í verkefninu Höldum fókus sem snýst um að vekja athygli á mikilli og almennri símnotkun við akstur og afleiðingum hennar með það að markmiði að draga úr slysum. Það er til mikils að vinna fyrir okkur sem samfélag að breyta þeirri hegðun til hins betra.“