7,96 milljarða velta var á viðskiptum í Kauphöll í dag. 2,4 milljarða velta var á viðskiptum með bréf á Aðalmarkaði og 5,6 milljarða velta var á viðskiptum með skuldabréf.

Gengi flestra fyrirtækja hækkaði á Aðalmarkaði í dag en mest hækkaði gengi bréfa í Sjóvá-Almennum eða um 5,73%. Næst á eftir koma Eimskip með 1,94% hækkun og VÍS með 1,28% hækkun. Mest lækkaði gengi bréfa í Marel eða um 1,01%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,12% í dag og stóð lokagildi hennar í 1.276,89.