Bréf í Sjóvá-Almennar tryggingar hf. verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland á morgun, en útboð fór fram í síðustu viku.

Eins og fram hefur komið er Sjóvá þriðja tryggingafyrirtækið sem er skráð í Kauphöllina en bæði VÍS og TM voru skráð fyrir um það bil ári síðan.