Sjóvárhúsið Í Kringlunni hefur verið auglýst til leigu af Reitum fasteignafélagi, eiganda hússins. Leigusamningur við Sjóvá rennur út um næstu áramót.

Mbl.is greinir frá. Haft er eftir Halldóri Jenssyni, forstöðumanni sölusviðs hjá Reitum, að fyrirtækið vilji með auglýsingunni kanna markaðinn. Hann eigi allt eins von á að Sjóvá verði áfram í húsinu.

Húsið að Kringlunni 5 er 5.504 fermetrar að stærð og var byggt sérstaklega undir starfsemi Sjóvár.