Neytendastofa fór nýlega í rannsóknarferð til Hveragerðis og Selfoss og kannaði verðmerkingar og hvort að vínmál á veitingastöðu væru lagi. Farið var á þrjá veitingastaði í Hveragerði og þrjá á Selfossi þar sem kannað var hvort matseðill væri við inngang og magnupplýsingar drykkja kæmu fram á matseðli. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar .

Af þessum sex veitingastöðum voru allir með matseðil við inngang og aðeins tveir ekki með magnupplýsingar drykkja á matseðli. Af þeim sex veitingastöðum sem skoðaðir voru reyndust fimm þeirra nota veltivínmál (sjússamæla) sem ekki voru löggiltir eða á Surf and Turf Austurvegi, Riverside á Hótel Selfoss, Menam Eyrarvegi, Hoflandsetrið Breiðumörk og Hótel Örk í Hvergerði.

Verðmerkingum víða ábótavant

Þá fór Neytendastofa í fimm sérvöruverslanir í Hveragerði og átján á Selfossi og athugaði hvort verðmerkingar í verslun og sýningargluggum væru í lagi. Verðmerkingar í verslununum Blómaborg í Hveragerði og A4, Tölvulistinn, Tölvu- og Rafeindaþjónusta Suðurlands og Árvirkinn á Selfossi voru ekki í lagi. Hjá tískufataversluninni Barón, barnafataversluninni Do Re Mí, Gallerí Ozone á Selfossi og Blómaborg í Hveragerði vantaði verðmerkingar í sýningarglugga.

Tvær ísbúðir voru skoðaðar á svæðinu, Ísbúð Huppu á Selfossi og Gottís í Hveragerði, og athugasemd gerð við báðar ísbúðirnar þar sem kælar með gosi og öðrum vörum voru alveg óverðmerktir á báðum stöðum.

Einnig var farið var í tvö bakarí á Selfossi og eitt í Hveragerði. Athugasemd var gerð við Guðnabakaríi þar sem goskælir var óverðmerktur og verð vantaði á kökur í og ofan á afgreiðsluborði. Í bakaríinu Almar Bakari á Selfossi voru vörur í kæli óverðmerktar.