Skakkiturn ehf. sem á og rekur Apple verslun á Laugavegi og í Smáralind fékk lögbann frá sýslumanni á sölu Buy.is á öllum Apple vörum á föstudag fyrir tæplega tveimur vikum. Skakkiturn hefur leyfi frá Apple Inc. til að flytja inn og dreifa vörum þess hér á landi.

Þeir aðilar sem selja Apple vörur hér á landi kaupa þær inn í gegnum Skakkaturn fyrir utan Buy.is. Forsvarsmenn Buy.is flytja inn vörurnar sjálfir, ýmist frá Bandaríkjunum eða Evrópu. Höfðað verður mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til staðfestingar lögbanninu eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst. Ekki er ljóst að svo stöddu hvenær málið verður tekið fyrir af hálfu dómstóla.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.