Skandinavískur bankamaður stendur á bak við hugsanlegt kauptilboð Eggerts Magnússonar, formanns Knattspyrnusambands Íslands, í breska knattspyrnufélagið West Ham, segir í frétt breska blaðsins Independent í dag.

Viðræður um kaup á klúbbnum hafa átt sér stað og talið er að verðmiðinn sé um 75 milljónir punda, eða í kringum 9,5 milljarðar. Skuldir West Ham nema um 22 milljónum punda.

Íranski athafnamaðurinnn Kia Joorabchian hefur einnig lýst yfir áhuga á West Ham og hefur hann gefið til kynna að hann sé nálægt því að fjármagna kauptilboð.

Eggert sagði í samtali við Independent í gær að honum væri alvara og hefur hann fengið Keith Harris, stjórnarformann Seymour Pierce, til að veita ráðgjöf. Seymour Pierce er ráðgjafar- og verðbréfafyrirtæki, sem Kaupþing var orðað við fyrr á þessu ári.

Getgátur eru um að athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson, eða félög tengd honum, ætli að fjármagna hugsanlegt kauptilboð Eggerts í West Ham.

Talsmaður Björgólfs Thors sagðist ekki vita hver væri á bak við tilboð Eggerts í félagið, en heimildarmenn Viðskiptablaðsins efast um að Eggert hafi fjárhagslegt bolmagn til að kaupa West Ham.

Eggert fullyrti í samtali við Ríkisjónvarpið í gærkvöldi að hann væri einn að skoða hugsanleg kaup á West Ham, en tók fram að málið væri á byrjunarreit.

Eggert staðfesti við breska fjölmiðla í gær að hann hætti í viðræðum um að kaupa breska knattspyrnufélagið, en samkvæmt upplýsingum The Times og The Daily Telegraph er hugsanlegt kaupverð í kringum 75 milljónir punda, sem samsvarar 9,5 milljörðum króna.