Skarphéðinn Berg Steinarsson verður formaður stjórnar FL Group nú þegar Hannes Smárason hefur flutt sig yfir í forstjórasæti félagsins. Um leið hefur verið ákveðið að Þorsteinn M. Jónsson verði varaformaður félagsins. þetta kemur í kjölfar þeirra miklu skipulagsbreytinga sem gerðar hafa verið hjá félaginu og greint var frá nú skömmu fyrir hádegi.