Skástrik er nýtt tímarit sem lítur dagsins ljós innan nokkurra vikna, en tímaritið verður gefið út á netinu, spjaldtölvum, í hljóðbókaformi og fyrir lesbretti.

Í tilkynningu kemur fram að stofnendur blaðsins eru Atli Þór Fanndal blaðamaður, Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður og Lilja Skaftadóttir, listaverkasali og fjárfestir. Þeir Atli Þór og Aðasteinn voru áður blaðamenn á DV og Lilja var áður einn eigenda DV.

Skástrik verður áskriftarblað og þar verða engar auglýsingar, því blaðinu er ætlað að þjóna lesendum og engum öðrum, eins og það er orðað í tilkynningunni. Engin auglýsingadeild starfar hjá Skástriki.

Vinna við undirbúning útgáfu Skástriks hefur staðið yfir síðustu mánuði og lagt verður upp úr lengri umfjöllunum frekar en stuttum fréttum. Vefsíða tímaritsins er á www.skastrik.is .