“Skattadagurinn er í dag, sunnudaginn 7. júlí, en þann dag hætta Íslendingar að vinna fyrir hið opinbera og byrja að vinna fyrir sig sjálfa. Almenningur er nú meirihluta ársins (187 daga) að vinna fyrir hið opinbera, eða frá 1. janúar til og með 6. júlí. Um 51% útgjalda heimilanna eru skattar og opinber gjöld.“ Svo segir í tilkynningu frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna, sem vekur athygli á skattadeginum annað árið í röð. Í fyrra bar daginn upp þann 9. júlí.

Í tilkynningu SUS segir að breytinga sé þörf, ríkið og sveitarfélög þurfi að sýna meiri ráðdeild og spara í rekstri. „Auk þess þarf að einfalda skattkerfið til muna, fækka sköttum og undanþágum, svo að það skili betur hlutverki sínu, þ.e.a.s. að afla ríkinu tekna.

SUS hvetur skattgreiðendur til að hugleiða á þessum degi hvort að þessir gríðarlega háu skattar, sem þeir greiða, skili sér nægjanlega vel í þau verkefni sem eru nauðsynleg og þurfa á skattpeningum að halda,“ segir í tilkynningu SUS.