Lækkun fyrirtækjaskatts í Bandaríkjunum gæti minnkað skattheimtu í öðrum löndum um 4,5-13,5% að meðaltali ef þau bregðast við með eigin skattalækkunum. Haldi þau skattkerfum sínum óbreyttum er áætlaður samdráttur í skattheimtu 1,6-5,2%. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins , sem Wall Street Journal segir frá .

Undir lok síðasta árs samþykkti Bandaríkjaþing lækkun á fyrirtækjaskatti úr 35% í 21%. Við það drógust skatttekjur bandaríska ríkisins saman, eins og við mátti búast. Samkvæmt rannsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins einskorðast áhrifin þó ekki við landsteinana.

Skattalækkunin mun draga fyrirtæki til Bandaríkjanna frá öðrum löndum, og draga þannig úr skatttekjum þeirra. Sé mark takandi á sögunni munu önnur lönd bregðast við með því að lækka einnig skatta, til að halda í sín fyrirtæki og draga að ný frá öðrum löndum, og þannig dregst meðalskattheimta enn frekar saman.

Alexander Klemm, aðstoðardeildarstjóri skattstefnudeildar AGS, segir áhrifin verða þeim mun meiri eftir því sem lönd eru með nánari efnahagsleg tengsl við Bandaríkin. „Þegar eitt land lækkar skatta, fylgja önnur vanalega í kjölfarið,“.

Mexíkó, Japan og Bretland eru samkvæmt rannsókninni líkleg til að finna hvað mest fyrir lækkuninni. Höfundarnir leggja þó áherslu á að staðbundin áhrif séu háð mikilli óvissu.