365 miðlar ehf. móðurfélag Fréttablaðsins og Stöðvar 2 munu taka yfir Pósthúsið, dreifingarfyrirtæki sem að fullu er í eigu 365 miðla. Frá þessu greinir Morgunblaðið og vísar til fréttar í Lögbirtingarblaðinu. Blaðið hefur eftir Ara Edwald, forstjóra 365, að um sé að ræða skattalega hagræðingu. Ætlunin sé að nýta uppsafnað tap Pósthússins innan samstæðunnar.

Rekstur Pósthússins gengur að sögn Ara vel og skilaði félagið 66 milljón króna hagnaði á síðasta ári.