Viðskiptaráð Íslands fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um að lækka tekjuskatt fyrirtækja úr 18% í 15%, en lækkun álagningar á fyrirtæki hefur verið eitt helsta baráttumál ráðsins um árabil. „Þessi tillaga ríkisstjórnarinnar er enn fremur til þess fallin að styðja við hugmyndir sem fram hafa komið um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð,” segir í yfirlýsingu frá forsvarsmönnum ráðsins.

Telja þeir að jákvæð áhrif skattalækkana á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og skattheimtur hins opinbera verði ekki dregin í efa. „Lægra skatthlutfall ýtir undir örari vöxt og aukna framleiðni ásamt því að leiða frekar til þess að fyrirtæki sjái sér hag í að setjast hér að - sem hefði þau áhrif að breikka skattstofninn. Allir þessir þættir vinna gegn samdrætti í skatttekjum ríkisins,” segir í yfirlýsingu ráðsins.

Ríkið dragi saman seglin

Ráðið telur afar mikilvægt að „hið opinbera dragi markvisst saman seglin samhliða þensluhvetjandi áhrifum boðaðra aðgerða til að vega upp á móti þeim eftirspurnarþrýstingi sem auknum kaupmætti fylgir. Mikilvægt er að grunnstoðir hagkerfisins séu samstíga í aðgerðum sínum og að almenn starfsemi og sértækar aðgerðir hins opinbera stuðli að sem mestu efnahagslegu jafnvægi. Til að jákvæð skref reynist ekki feilspor þurfa því fjármál hins opinbera að vinna kerfisbundið gegn sveiflum og styrkja sameiginlega ábyrgð Seðlabankans og stjórnvalda á verðbólgumarkmiðinu.“