Samninganefnd SGS hefur fengið vilyrði frá ríkisstjórn um að skattar verði lækkaðir fyrir tekjulága til að liðka fyrir kjaraviðræðum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Tilefnið mun vera að SA hafi lagt fram tilboð upp á launahækkun sem nemi 23,6% á næstu þremur árum. Tilboðið hljóðar einnig upp á breytingu á vinnutíma, sem yrði vinnuveitendum til hagræðingar. SA segja að það sé gert til að vinnuveitendur geti risið undir jafn snörpum launahækkunum og raun ber vitni.
Tilboð SA gerir ráð fyrir því að lægstu laun muni þannig ná því að vera 280.000 krónur að þremur árum liðnum, en skattkerfisbreytingar muni verða til þess að þau nemi 300.000 krónum að raungildi.
SGS ekki tekið vel í hugmyndina
SGS hefur hins vegar sagt að ofangreint tilboð SA sé of lágt. „Almennar launahækkanir sem SA bauð í tilboðinu er 14% á þremur árum, að meðaltali 30.000 króna hækkun taxta á þremur árum. Aðrar launahækkanir í tilboðinu voru tilfærslur sem verkafólk greiddi sjálft með lækkun yfirvinnuprósentu og lengingu dagvinnurammans – við erum ekki til viðræðu um slíkt nema það sé tryggt að hægt sé að lifa á dagsvinnulaunum, svo var ekki í tilboðinu,“ segir í yfirlýsingu frá Drífu Snædal, framkvæmdastjóra SGS.
18% greiða ekki skatta
Tekjuskattkerfi Íslendinga er þrepaskipt eftir tekjum. Þá er veittur persónuafsláttur af tekjuskatti, en hann er hlutfallslega meiri eftir því sem laun eru lægri. Í Tíund, blaði ríkisskattstjóra, kemur fram að tekjulægstu 18% fjölskyldna greiði engan skatt. Viðbúið er að hlutfallið hækki ef vilyrði ríkisstjórnarinnar verði að veruleika.