Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag hækkun á útsvari frá og með 1. júlí nk. Hækkunin nemur 0,08%, útsvarshlutfallið fer úr 14,4% í 14,48%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en eftir hækkunina er útsvarshlutfallið í Reykjavík fullnýtt.

„Útsvarið er veigamesti tekjustofn sveitarfélagsins og er áætlað að hækkunin nú skili um 115 milljónum í borgarsjóð,“ segir í tilkynningunni.

„Með hækkuninni að viðbættum 85 milljónum af liðnum ófyrirséð, verður lögbundið kennslumagn grunnskóla Reykjavíkur tryggt, ásamt viðunandi gæslu nemenda í frímínútum og forfallakennslu.“