Bæjarstjórn  Seltjarnarness samþykkti í vikunni tillögu um að lækka fasteigna- og vatnsskatt. Einnig var samþykkt sérstök 20% viðbótarhækkun á afslætti aldraðra og öryrkja af fasteignaskatti. Álagningarstuðull fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,24% í 0,18% af fasteignamati húsnæðis. Hefur hlutfall fasteignaskatts á Seltjarnarnesi því lækkað um nærfellt 25% á innan við ári. Hækkun fasteignamats á sama tíma er 16%. Álagningarstuðull vatnsskatts lækkar einnig úr 0,115% í 0,09% af fasteignamati og hefur þá lækkað alls um 22% á sama tímabili.

Í tilkynningu frá bæjarstjórn segir: „Lækkanir þessar endurspegla þá stefnu bæjaryfirvalda að koma til móts við skattgreiðendur í ljósi hækkandi fasteignamats og er jafnframt ætlað að undirstrika mikilvægi skattalækkana í þeim kjaraviðræðum sem nú fara í hönd. Samhliða þessu tók bæjarstjórn ákvörðun um að sérstaklega verði komið til móts við fasteignaeigendur í hópi aldraðra og öryrkja með 20% hækkun tekjuviðmiðs á afslætti vegna fasteignaskatts. Aukin afsláttur nú kemur til viðbótar 20% hækkun afsláttar sem ákveðin var á síðasta ári. Er það liður í að bæta aðstæður og kjör þessa hóps í bæjarfélaginu sérstaklega.“