Skattbyrði, reiknað sem hlutfall skatttekna hins opinbera af vergri landsframleiðslu, lækkaði mest á Íslandi af ríkjum OECD á milli áranna 2007 og 2008, eða úr tæplega 41% í 36%.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en þar segir þó að þessi þróun sé ekki einsdæmi þar sem þetta skatthlutfall lækkaði í 17 af 26 aðildarríkjum OECD sem skilað hafa inn gögnum fyrir árið 2008.

Lækkunin er næst mest á Spáni (úr 37,2% í 33%) og þar á eftir á Írlandi (úr 30,8% í 28,3%).

Greining Íslandsbanka segir að líkt og hér á landi endurspegli þessar lækkanir hrun ýmissa mikilvæga skattstofna, svo sem tekjuskatta, eignarskatta og skatta af vörum og þjónustu.

Þá kemur fram að í níu ríkjum af 26 hækkar skatthlutfallið á milli áranna 2007 og 2008. Hækkunin er mest í Mexíkó (úr 18% í 21,1%) og næst mest í Lúxemborg (úr 36,5% í 38,3%). Í Mexíkó endurspeglar hækkunin auknar tekjur af olíu en í Lúxemborg aukna innkomu af tekjusköttum og sköttum af vöru og þjónustu. Umfjöllun Greiningar Íslandsbanka byggir á skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um skattamál sem birt var í gær.

Að meðaltali var hlutfall skatttekna af vergri landsframleiðslu 35,8% í ríkjum OECD árið 2007 og áætlar stofnunin að hlutfallið fari niður í 35,2% árið 2008. Auk þess bendir flest til þess að hlutfallið komi til með að lækka enn frekar á fyrirliggjandi ári en algengt er að skatttekjur minnki hlutfallslega meira en sem nemur lækkun vergar landsframleiðslu vegna þeirrar innbyggðu sveiflujöfnunnar sem er í skattkerfum flestra landa. Jafnframt hafa mörg aðildarríkjanna lækkað skatta til þess að mæta minnkandi eftirspurn í kjölfar fjármálakreppunnar.

Greining Íslandsbanka segir þetta þó vera með öðrum hætti hér á landi þar sem skattar hafa verið hækkaðir og koma til með að hækka enn frekar um næstu áramót m.v. þær skattbreytingar sem ríkisstjórnin kynnti nýverið.

„Þess má geta að þrátt fyrir umfangsmiklar skattahækkanir hér á landi stefna skatttekjur ríkissjóðs í hlutfalli við verga landsframleiðslu að verða með því lægsta sem það hefur verið undanfarin ár enda hafa ýmsir skattstofnar hrunið sem gefið hafa af sér drjúgar tekjur á undanförnum árum,“ segir í Morgunkorni.

Skattbyrðin mest á Norðurlöndum

Þá kemur fram að sem hlutfall af landsframleiðslu var skattbyrðin mest í Danmörku (48,3%) á árinu 2008 og þar á eftir í Svíþjóð (47,1%). Finnland (42,8%) og Noregur (42,1%) eru ekki langt undan og verma 7. og 8. sæti yfir þau ríki með mestu skattbyrðina.

„Miðað við þá áætlun OECD að hlutfall skatttekna verði um 35,2% að meðaltali í ríkjum OECD má sjá hversu hátt þetta hlutfall er á Norðurlöndunum,“ segir í Morgunkorni en Ísland (36%) er þó einungis rétt yfir meðaltali þetta árið og skipar 14. sæti á þessum lista.