Um 160 milljónir af skatttekjum eru teknar af Suðurnesjum í önnur sveitarfélög, þ.e. af skattfé sem renna átti úr jöfnunarsjóði til málefna fatlaðra. Á vetrarfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem haldinn var í Stapa á föstudag í síðustu viku kom fram að í stað þess að ríkið leggi meira til málefna fatlaðra á Suðurnesjum, þar sem hlutfall öryrkja er t.d. hæst á landinu og skatttekjur lægstar, eru skatttekjur sem koma af svæðinu teknar og þeim endurúthlutað annað. Þannig vantar 160 milljónir króna á Suðurnesjum í þágu málefna fatlaðra.

Fram kemur í tilkynningu að við yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga frá ríki fyrir tveimur árum hafi útsvar hækkað um 1,2% á móti lækkun tekjuskatts. Þessi upphæð skyldi í rekstur og uppbyggingu í þágu fatlaðra. Hún átti að fara í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og þaðan til sveitarfélaganna.

Þá er vitnað til þess að í nýlegri greinargerð Íslandsbanka um fjárhagsstöðu sveitarfélaga, sem miðar við árið 2011 kom einnig fram að þegar tölur frá Jöfnunarsjóði eru almennt skoðaðar eru greiðslur Jöfnunarsjóðs til Suðurnesja árið 2011 lægstar á eftir höfuðborgarsvæðinu þegar landshlutar eru skoðaðir. Þetta gerist þrátt fyrir að tekjur íbúa séu hlutfallslega lægstar á Suðurnesjum, hlutfall öryrkja mest og atvinnuleysi mest.