Fyrir tveimur árum var hann einn af ríkustu smásölum Bretlands með áætlaðar eignir upp á 220 milljónir punda. Nú hefur eitt af fyrirtækjum Kevin Stanford, Brookers Chauffeur Services, hins vegar neyðst til að fara út í frjálsa nauðasamninga vegna skuldar upp á aðeins 300.000 pund.

Svona hefst frétt í Telegraph um erfiðleika Brookers Chauffeur Services sem var notað til að flytja helstu smásala um Lundúnir. Í fréttinni segir að stærsta skuldin sé skattskuld upp á 150.000 pund. Þar segir ennfremur að Kevin Stanford hafi farið illa út úr bankahruninu hér á landi.

Frétt Telegraph